Sælt veri
fólkið..
Kannski kominn
tími á að ég hendi hér inn nokkrum línum...
Helgin er búin að vera alveg frábær. Litla (stóra) systir mín
kom í heimsókn til mín um helgina. Við byrjuðum helgina á því að
fara á tónleika með Katie Melua og vorum ekkert lítið spenntar
fyrir tónleikunum enda búnar að bíða eftir þeim síðan um jólin.
Tónleikarnir voru vægast sagt frábærir. Ég hef aldrei heyrt svona
fullkominn live flutning áður, heyrði ekki einn falskan tón. Takk
Siggi bró fyrir jólagjöfina, svona jólagjöfum gleymir maður
seint.
Eftir
tónleikana ákváðum við Ninna að fara á videóleiguna og ná okkur í
mynd (og nammi). Við tókum Corpse Bride og hlökkuðum mikið til að
horfa á hana, en viti menn. Við vorum báðar sofnaðar í sófanum
þegar ca. 20 mínútur voru búnar af myndinni, þannig að Egill greyið
horfði einn á myndina.
Við byrjuðum
laugardaginn á því að fara með Sigga bróður okkar á
þjóðminjasafnið. Ég var að fara þangað í annað skiptið eftir
breytingarnar, en Ninna og Siggi voru að fara í fyrsta skiptið.
Safnið stóð fyrir sínu, stórglæsilegt og flott... Eftir þetta fórum
við systurnar í verslunarleiðangur í Kringluna, eða kannski er ekki
hægt að kalla þetta verslunarleiðangur þar sem ég átti engan pening
til að eyða í föt og Ninna lítinn sem engan. Úff, það er svo erfitt
að fara í búðarráp þegar maður getur ekki keypt neitt, algjör kvöl
og pína... En Ninna systir keypti sér voða flottar buxur og
samgleðst ég henni þrátt fyrir smá öfundsýki,
hehe.
Eftir
búðarrápið kíktum við í heimsókn til Ingu frænku. Kisan hennar
eignaðist sex kettlinga fyrir mánuði síðan og fengum við að kíkja á
litlu krílin. Ó guð hvað þeir eru sætir... Ég bráðnaði alveg í
klessu, ÞVÍLÍK KRÚTT.. fallegustu ungviði sem til eru.. (fyrir utan
börn)...!!!
Þeir sem hafa áhuga á að fá
kettling geta hringt í frænku mína í síma 552-3937 eða 692-3937...
Hún er á fullu núna að reyna að finna eigendur fyrir litlu
krúttin... Ég get sagt ykkur það að miðað við hvað mamman er blíð
og góð kisa þá hljóta kettlingarnir að verða það líka... Gott kyn!!

Við fórum svo
út að borða á Pizza Hut og skelltum okkur síðan öll saman, ég,
Egill og Ninna í bíó á The New World. Sú mynd var allt öðruvísi en
ég hafði hugsað mér.. Weird en góð samt sem áður...
J
Sunnudagurinn var tekinn rólega. Fórum aðeins í Smáralind og í
heimsókn til Sigga bróður og svo fór Ninna heim til Ak með flugi
kl.17. Takk elsku Ninna mín fyrir helgina, það var svo gaman að fá
þig í heimsókn. Svo kíkiru til mín einhverntíman í sumar (þegar
tívolíið er komið við Smáralind)... 
Í
þessum rituðu orðum er ég á þjóðarbókhlöðunni. Búin að klára
síðustu efnagreiningarskýrsluna, HALELÚJA!!! Núna á ég bara eftir
nokkrar skýrslur í örverufræði og tvær skýrslur í almennri
efnafræði 2 og svo er þetta skýrslufár búið... Get ekki
beðiðJ Er
komin með nett ógeð á þessu... :’(
Mamma er stödd í bænum, situr nánar tiltekið í nokkurra metra
fjarlægð frá mér hérna á þjóðarbókhlöðunni. Við mæðgurnar ætlum að
fara út að borða í kvöld og fara svo að skoða kettlingana (fæ ekki
nóg af þeim)...
JÆJA, komið nóg
í bili...
Enda þetta með
myndum af kettlingunum...

Svo lítill..

Þarna sést hvað þeir eru fallegir á litinn...

Þessi er svo sætur, en honum fannst samt gaman að læsa klónum í
handabakið á mér eins og hann er að gera á þessari mynd.. ái..

Algjör rúsínurassgöt.. 
p.s. muna svo
eftir að kvitta og skrifa í gestabókina... ég hef svo gaman af því
að sjá hverjir kíkja inn á síðuna...